Contact data Contact data
 
SAFT Iceland
SAFT
saft@saft.is
Sudurlandsbraut 24
105 Reykjavik
Iceland
 
Web Content Display Web Content Display
 

 

Heimili and skoli, the National Parent Association in Iceland, has been the National Awareness Node for Internet Safety in Iceland since 2004. The name created for the awareness raising efforts is Samfélag, fjölskylda og tækni (Community, Family and Technology), with the acronym SAFT. As awareness centre under the EU Safer Internet Programme, Heimili og skoli aims are to raise awareness on the safe and positive use of the Internet and new media among children, parents, teachers, policy makers, and the ICT industry in Iceland.

SID 2010 activities

1. The SID spot will be aired on all 3 national TV stations in Iceland

2. A conference on “Think before you post” in collaboration with Microsoft Iceland, The Public Health Institute of Iceland, Nyherji, Vodafone and Ministry of Education, Culture and Science

3. Announce the winner of a national student competition on Peer2Peer educational material on safe and positive use of the internet

4. All 3 national TV stations and the major radio stations will cover SID 2010 in the news and talk shows

5. SID 2010 will be promoted in all major newspapers and local community papers across Iceland. It will also be promoted with web-banners, direct mailing through our network and with viral marketing via Facebook, Youtube etc.

6. In collaboration with Microsoft Iceland we will travel across Iceland with school conferences on “Think before you post”, inviting students, parents, teachers and the local community to participate

 

 

 
Blogs Blogs
 
Blogs »
FRÉTTATILKYNNING

Fréttatilkynning

 Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 9. febrúar 2010

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í sjöunda sinn þann 9. febrúar næstkomandi. Þemað í ár er „Hugsaðu áður en þú sendir!” og munu yfir 60 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag.

Með nýrri tækni erum við flest orðin að útgefendum upplýsinga, mynda og myndbanda. En hegðun okkar á netinu getur einnig gert okkur „heimsfræg” á stuttum tíma. Við getum tjáð okkur á netinu með auðveldum hætti en það getur einnig haft í för með sér vandræði. Sem dæmi má nefna að þegar mynd hefur verið sett á netið er nánast ógerlegt að eyða henni aftur og allir hafa aðgang að henni, jafnvel mörgum árum síðar. Þó settar séu að því er virðist saklausar partýmyndir á netið í dag getur tilvist þeirra þar haft neikvæðar afleiðingar í för með sér við atvinnuleit mörgum árum síðar. Því þarf að tryggja að börn, unglingar og fullorðnir búi yfir nægilegri þekkingu til að stjórna upplýsingagjöf sinni á ábyrgan hátt og virði um leið val annarra á hvað fer á netið og hvað ekki.

Netöryggismiðstöðvar 27 Evrópuþjóða, sem mynda Insafe netverkið (www.saferinternet.org), og nærri 40 önnur lönd munu þennan dag leiða saman ungt fólk og fullorðna til þess að vekja athygli á og ræða mikilvægi þess að hugsa sig um áður en efni er sett á netið. Netverkið hefur látið framleiða stutta auglýsingu til þess að styðja við herferðina, en hún verður aðgengileg bæði á netinu (www.saft.is ) og sýnd í sjónvarpi næstu daga.

Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl. 14.30-16.30. Fundarstjóri verður Páll Óskar Hjálmtýsson.


Dagskrá:

·         Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið

·         Hrannar Pétursson, forstöðumaður almennatengsla hjá Vodafone: „Ringulreiðarmálið” - Myndbirtingar barna og unglinga á netinu. Hvað segja netþjónustuaðilar?

·         Einar Norðfjörð og Anna Kristína Lobers, ungmennaráði SAFT: Reynsluheimur unga fólksins: Vinasöfnun og myndbirtingar á félagsnetsíðum

·         Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi: Friðhelgi á jaðri netsins

·         Jónas Kristjánsson, ritstjóri: Þolmörkin færðust til

·         Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Netsiðferði - Persónuvernd og pólitískur áróður

·         Sólveig Jakobsdóttir, Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands: Félagsnet í fræðilegu samhengi: Rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks á netinu

·         Sigríður J. Hjaltested, aðstoðarsaksóknari, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu:  Rannsókn mála tengd netinu

·         Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, og Emil Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Nýherja, veita verðlaun í nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis um jákvæða og örugga netnotkun

·         Pallborðsumræður

·         Veitingar


Málþingið verður sent beint út á netinu en nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT (www.saft.is). 

Next
 
Images Images
 
Showing 4 results.
 
Documents Documents
 
Showing 3 results.
 

Home | Contact | Legal notices | About